Bronckhorst neitaði Hollendingum

Giovanni van Bronckhorst hafnaði Hollendingum.


  • Prenta
  • Senda frétt

Giovanni van Bronckhorst hafnaði hollenska knattspyrnusambandinu, þegar það bauð honum að verða aðstoðarþjálfari hollenska landsliðsins. Louis van Gaal hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari og var leitað til Bronckhorst um að aðstoða hann.

Bronckhorst sem lék síðast með hollenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku 2010 en lagði svo skóna alfarið á hilluna ári síðar og hefur síðan þá gegnt hlutverki aðstoðarþjálfara hjá Feyenoord. Það hyggst hann gera áfram frekar en að vinna fyrir knattspyrnusambandið.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku