Breytt landnotkun

Engar kindur takk


  • Prenta
  • Senda frétt

Það hafa orðið miklar breytingar á búskaparháttum í landinu og landnýtingu. Bújörðum með hefðbundnum búskap hefur fækkað en annarskonar nýting aukist

Landgræðsla, skógrækt, kornrækt og friðun lands; allt hefur þetta aukist gífurlega á undanförnum áratugum. Þar við bætast svo hugmyndir manna um repjurækt og fleira. Eignarhald á jörðum hefur einnig breyst, æ fleiri jarðir eru komnar í eigu fólks sem hefur ekki fasta búsetu á þeim en dvelst þar hluta úr ári. Mismunandi hagsmunir hafa leitt til árekstra , ekki síst vegna lausagöngu búfjár. Mörgum þykir lagaumhverfið ekki hafa tekið breytingum í takt við breytt umhverfi. Landinn leitaði svara við því hverju helst þyrfti að breyta.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku