Prenta frétt

Senda frétt

Breytingar á svæðisstöðvum

Miklar breytingar verða á starfsemi Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni nú um mánaðamótin, þegar svæðisbundnar útsendingar leggjast af. Morgundagurinn verður síðasti útsendingardagur Svæðisútvarps Vesturlands og Vestfjarða.


Þegar svæðisbundnar útsendingar leggjast af, breytast störf fréttamanna svæðisstöðvanna all verulega. Þeir munu nú einbeita sér að vinnslu frétta og dagskrárefnis frá landsbyggðinni til  birtingar á landsvísu eingöngu, í útvarpi og sjónvarpi. Um nokkurt skeið hefur sérstakur landsbyggðafréttatími verið sendur út á Rás tvö klukkan ellefu á morgnana. Þessi fréttatimi verður áfram og líklegt er að honum verði fundinn nýr staður í dagskránni og hann efldur. Þá hefur nýr útvarpsþáttur; Hádegisútvarpið, göngu sína um miðjan mars. Freyja Dögg Frímannsdóttir verður umsjónamaður þessa þáttar, sem verður sendur út frá Akureyri og byggður að mestu á efni frá fréttamönnum RÚV á landsbyggðinni.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

29. júlí 2010

Streymiþjónusta