Bretland: Barn lést í sprengingu

Flokkar: Evrópa, Erlent
Aðkoman var hrikaleg eftir sprenginguna í Oldham. Mynd: BBC


  • Prenta
  • Senda frétt

Ungt barn lést í sprengingu í borginni Oldham í Bretlandi í dag. Talið er að gassprenging hafi orðið, en húsið sem barnið var í jafnaðist við jörðu.

Karlmaður var fluttur á sjúkrahús með alvarleg brunasár. Fimm nálæg hús skemmdust einnig mikið. Hundrað hús í nágrenninu voru rýmd í kjölfar sprengingarinnar. Enn er leitað í rústunum að fólki sem gæti mögulega verið þar fast, en engra er þó saknað.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku