Breskir þingmenn í slagsmálum

Þingmanni breska Verkamannaflokksins hefur verið vikið af þingi eftir að hann var handtekinn fyrir slagsmál á bar í neðri málstofu breska þingsins. Talsmaður flokksins segir að þingmaðurinn verði að minnsta kosti frá störfum meðan lögreglurannsókn stendur yfir.

Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokksins, ákvað að þingmaðurinn, Eric Joyce, skyldi víkja í kjölfar málsins.

Atvikið varð seint í gærkvöldi þegar fjöldi fólks var staddur á barnum.

Þingmaður Íhaldsflokksins hefur sakað Joyce um að hafa kýlt sig og skallað og segir koma til greina að kæra Joyce fyrir líkamsárás.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku