Brekkan á landsleiknum-myndskeið
Fyrst birt: 04.08.2012 21:11, Síðast uppfært: 04.08.2012 21:12

Þjóðhátíðargestir fylgdust með landsleiknum á tveimur risaskjám í Herjólfsdal. Mynd: Sighvatur Jónsson
Hundruð Þjóðhátíðargesta söfnuðust saman í brekkunni í Herjólfsdal til að fylgjast með útsendingu frá leik Íslands og Frakklands á Ólympíuleikunum. Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá og heyra fagnaðarlæti og hvatningarhróp hátíðargesta sem horfðu á útsendingu RÚV á risakjá á brekkusviðinu.
Eins og sjá má á myndum sem Sighvatur Jónsson tók ætlaði allt um koll að keyra í brekkunni þegar íslenska handboltalandsliðið sigraði Frakka með 30 mörkum gegn 29.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














