Brasilíumenn sigruðu Egypta á ÓL

Neymar fagnar marki sínum gegn Egyptum á Ólympíuleikunum í dag - Mynd: AFP


  • Prenta
  • Senda frétt

Brasilíumenn sigruðu Egypta 3-2 í C-riðli í knattspyrnukeppni karla á Ólympíuleikunum í London í kvöld. Rafael da Silva, Leandro Damiao og Neymar skoruðu mörk brasilíska liðsins en Mohamed Aboutrika og Mohamed Salah gerðu mörk Egypta.

Þá gerðu Bretar og Senegalar 1-1 jafntefli í A-riðli. Craig Bellamy skoraði mark breska liðsins í fyrri hálfleik en Moussa Konate jafnaði fyrir Senegal í þeim síðari.  

 

Úrslit allra leikja í fyrstu umferð:

A-riðill:

  • Sameinuðu arabísku furstadæmin 1 – 2 Úrúgvæ
  • Bretland 1 – 1 Senegal

 

B-riðill:

  • Mexíkó 0 – 0 Suður-Kórea
  • Gabon 1 – 1 Sviss

 

C-riðill:

  • Hvíta-Rússland 1 – 0 Nýja-Sjáland
  • Brasilía 3 – 2 Egyptaland

 

D-riðill:

  • Hondúras 2 – 2 Marokkó
  • Spánn 0 – 1 Japan

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku