Brasilíumenn lögðu Breta

Úr leik liðanna í kvöld - Mynd: AFP


  • Prenta
  • Senda frétt

Brasilíumenn sigruðu Breta 2-0 í æfingaleik á Riverside vellinum í Middlesbrough í kvöld. Sandro kom Brasilíu yfir með marki á 12. mínútu og Neymar jók forystu liðsins þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á 35. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur því 2-0 gestunum í vil.

Bæði lið undirbúa sig nú fyrir keppni á Ólympíuleikunum sem hefjast í London í næstu viku.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku