Börnin syngja á Öskudaginn

Öskudagurinn er í dag. Það er nokkuð misjafnt eftir landshlutum hvernig haldið er upp á daginn en á Akureyri voru draugar, prinsessur, nornir og bófar á barnsaldri farin á fætur fyrir allar aldrir og byrjuð að rölta syngjandi milli fyrirtækja áður en birti.

Á meðfylgjandi myndbandi má sjá nokkra krakka sem heimsótt hafa RÚV á Akureyri í morgun, glatt starfsmenn þar með söng og fengið sælgæti að launum. Þau létu veðrið ekki stoppa sig en snjó hefur kingt niður á Akureyri það sem af er degi. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku