Borgin greiði Frjálslynda flokknum

Reykjavíkurborg var í dag dæmd til að greiða Frjálslynda flokknum 6,7 milljónir króna með dráttarvöxtum allt frá júlí 2008 að frádregnum 3,4 milljónum sem borgin greiddi Frjálslynda flokknum árið 2010.
Frjálslyndi flokkurinn höfðaði málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn borginni og til réttargæslu Ólafi F. Magnússyni fyrrverandi borgarstjóra. Hann lét málið ekki til sín taka. Ólafur fékk samtals ríflega 6 milljónir frá borginni sem hann átti ekki að fá samvkæmt dómi héraðsdóms.
Framlag Reykjavíkurborgar sem stjórnmálasamtök eiga rétt á var greitt inn á félag Ólafs en ekki til Frjálslynda flokksins en Ólafur hafði þá sagt sig úr flokknum. Hann hafði því ekki lengur umboð til að koma fram fyrir hönd hans segir í niðurstöðu dómsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Frjálslyndir vilja fé frá borginni





