Borgartréð í garði Hressingarskála

Gljávíðirinn gamli. Mynd af vef Reykjavíkurborgar.
Borgartré Reykjavíkur er 112 ára gamall gljávíðir í garði Hressingarskálans við Austurstræti. Tréð var valið af Skógræktarfélagi Reykjavíkur í samráði við Reykjavíkurborg. Árni Thorsteinsson, landfógeti gróðursetti víðinn um aldamótin 1900 í garði sínum.
Garðurinn löngum við hann kenndur og kallaður Landfógetagarðurinn. Plöntuna fékk Árni að gjöf frá Schierbeck landlækni. Frá þessu segir á vef Reykjavíkurborgar og þar kemur fram að þegar Árni flutti inn í húsið var fyrir kartöflugarður og lítil skilyrði til garðræktunar.
Af mikilli elju ræktaði Árni í garðinum fjölda plantna sem aldrei höfðu verið ræktaðar hér landi og líka algengar garðjurtir og skrúðplöntur.
Gljávíðirinn hefur mátt þola ýmislegt á langri ævi. Hann hallaðist á hlið í stormi fyrir nokkrum árum en hefur náð að skjóta rótum að nýju. Víðirinn hefur fjóra boli um 30 sentimetra á þykkt. Hann er tæplega sjö metra hár en nær níu metra langur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












