Boko Haram helsta ógnin
Fyrst birt: 10.01.2012 13:40, Síðast uppfært: 10.01.2012 13:40

Goodluck Jonathan, forseti Nígeríu. Mynd:AFP
Goodluck Jonathan, forseti Nígeríu, segir að Boko Haram, herská samtök islamista, séu helsta ógnin sem landið standi frammi fyrir síðan í Biafra-stríðinu árið 1967.
Suður-afríska blaðið Mail and Guardian hefur þetta eftir forsetanum, sem segir að í Biafra-stríðinu hafi menn vitað hver óvinurinn var, en málið sé nú mun flóknara. Boko Haram eigi víða fylgissmenn, þar á meðal leynilega stuðningsmenn innan nígerísku stjórnarinnar, hersins, lögreglunnar og annarra öryggisstofnana landsins.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














