Þjóð í ólestri
Fyrst birt: 02.02.2012 20:46, Síðast uppfært: 02.02.2012 20:46

Íslendingar eru að mörgu leyti klofin þjóð. Fyrir jól og á bókahátíðum úti í heimi teljum við okkur vera eina merkilegustu og mestu bókaþjóð í heimi.
Svo koma niðurstöður Pisa könnunar sem sýna að ríflega fimmti hver fimmtán ára drengur getur ekki lesið sér til gagns, hvað þá gamans. Hópur fólks hefur skorið upp herör gegn þessari þróun og að það gangi ekki að þjóðin sé í slíkum ólestri. Rithöfundar eru áberandi í lesbjörgunarsveitinni svokölluðu og Jón Kalman og Andri Snær settust hjá Þóru.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







