Boðar áfanga í kjarnorkuáætluninni
Fyrst birt: 11.02.2012 11:06, Síðast uppfært: 11.02.2012 11:06

Forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad, sagði í ræðu í dag að bráðlega muni íranir tilkynna um mjög mikilvægan áfanga í kjarorkuáætlun sinni.
Forsetinn hélt ræðu á fjöldafundi sem haldinn var í tilefni af þrjátíu og þriggja ára afmæli íslömslu byltingarinnar og sýnt var frá í beinni útsendingu. Hann útskýrði ekki nánar í hverju þessi áfangi fælist.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







