BNA: Hagvöxtur jókst lítillega

Enn er mikið atvinnuleysi vestra.

Hagvöxtur mældist ívið meiri á síðasta ársfjórðungi 2011 í Bandaríkjunum, en mánuðina á undan, samkvæmt upplýsingum úr Viðskiptaráðuneyti landsins. Var 2,8% hagvöxtur í október, nóvember og desember, en hafði aðeins verið 1,8% í júlí, ágúst og september.

Hagfræðingar höfði spáð þriggja prósenta vexti síðasta ársfjórðunginn, svo þetta var aðeins minna en vonast var eftir. Þá segja þessar tölur ekki alla söguna. Vöxturinn er rakinn til aukinnar framleiðslu, ekki sölu, fyrirtæki sitji uppi með stærri lager en áður. Neysla hafi þó aukist um tvö prósent, þar muni mest um að sala bifreiða jókst um 14,8 prósent síðusti þrjá mánuði ársins sem leið.

Timothy Gethner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, segir þessar lágu tölur helgast af því að Bandaríkjamenn súpi enn seyðið af fjármálakreppunni 2008. Til að mynda sé lítið sem ekkert byggt af íbúðarhúsnæði. Atvinnuleysi sé mikið vestan hafs, og allur almenningur enn skuldum vafinn. Ekki sé ráðlegt að búast við meira en 2-3 prósenta hagvexti í Bandaríkjunum í ár.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent, Efnahagsmál

Tilkynna um bilaða upptöku