Blaðamenn grunaðir um mútur

Yfirmenn á breska götublaðinu The Sun, eru í hópi þeirra sem handteknir voru í morgun vegna rannsóknar lögreglu á mútugreiðslum til opinberra starfsmanna. Sun er systurblað News of the World, sem hætt var að gefa út í fyrra eftir að upp komst um símahleranir blaðamanna þar.

Sun er stærsta dagblaðið í Bretlandi, kemur út í 2,7 milljónum eintaka á hverjum degi og er í eigu News Corporation, sem er fjölmiðlafyrirtæki Ruperts Murdoch. Scotland Yard hefur að undanförnu rannsakað mútugreiðslur blaðamanna á Sun til opinberra starfsmanna. Í síðustu viku voru fjórir blaðamenn og lögregluþjónn handteknir vegna málsins og í dag var röðin komin að átta manns, þar á meðal eru einn af aðstoðarritstjórum blaðsins og háttsettir blaðamenn, sem og starfsmaður breska varnarmálaráðuneytisins og hermaður.

Embættismennirnir eru grunaðir um að hafa veitt blaðinu trúnaðarupplýsingar gegn greiðslu. Talsmenn Scotland Yard sögðu í dag að upplýsingarnar sem leiddu til handtökunnar í dag hefðu komið frá sérstökum hópi sem stjórnendur móðurfyrirtækis blaðsins hefðu sett upp til að rannsaka mögulegar mútugreiðslur.

Þetta hneyksli kemur í kjölfar þess að útgáfu systurblaðs Sun, News of the World, var hætt í fyrra, eftir að upp komst um símhleranir blaðamanna þar. Það mál er enn í rannsókn hjá bresku lögreglunni.

 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku