Björn Zoëga rúinn trausti

Elsa B. Friðfinnsdóttir.
Sú ákvörðun að hætta við umdeilda launahækkun forstjóra Landspítalans kemur of seint að mati formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Erfitt verði að byggja upp það traust sem hann hafi misst.
Í gær var tilkynnt að Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra og Björn Zoëga, forstjóra Landspítala, hafi komist að samkomulagi um að falla frá umdeildri launahækkun forstjórans sem hefði að óbreyttu komið til framkvæmda um næstu mánaðamót. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, var ein þeirra sem hafði gagnrýnt fyrirhugaða hækkun harðlega. Hún segir að afturköllun á hækkuninni komi of seint fyrir forstjórann.
„Hann sagði sig í raun og veru úr liðinu og þar tel ég að þetta traust og þessi trúnaður hafi rofnað sem ríkti á milli. Það verður mjög erfitt að byggja það upp aftur. Ef að átti að bæta þann skaða sem orðinn var, eða fyrirbyggja, þá hefði þetta þurft að gerast strax tveimur til þremur dögum eftir að þetta fór í fréttir. Nú er þetta búið að gerjast í tvær vikur og magnast upp óánægja,“ segir Elsa.
Hún segir að málið hafi einnig haft í för með sér að umræða hafi skapast um ástandið í heilbrigðiskerfinu og sparnað síðustu ára. „Höfum við gengið of langt, erum við raunverulega að veita þá þjónustu sem við viljum og eigum að gera? Þannig að það er jákvæða hliðin á þessu og umræða sem við þurfum að halda áfram með,“ segir hún.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














