Bjerringbro-Silkeborg inn fyrir AG



  • Prenta
  • Senda frétt

Evrópska handknattleikssambandið hefur ákveðið að Bjerringbro-Silkeborg, sem Guðmundur Árni Ólafsson leikur með, taki sæti AG Kaupmannahafnar í C-riðli Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð. Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að lið AG hefur nú verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Tveir íslenskir leikmenn spila með AG, landsliðsmennirnir Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson.

Bjerringbro-Silkeborg hafnaði í öðru sæti dönsku deildarinnar á síðustu leiktíð.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku