Bjargaði lífi dóttur sinnar

Gísli og Sigurbjörg við athöfnina í dag.

Gísli Örn Gíslason var í dag valinn skyndihjálparmaður ársins 2011 en hann sýndi hárrétt viðbrögð þegar dóttir hans fór í hjartastopp á heimili þeirra í janúar í fyrra. Gísli tók við viðurkenningu Rauða krossins í Smáralind í dag þar sem haldið var upp á 112-daginn.

Gísli bjargaði lífi átján ára gamallar dóttur sinnar, Sigurbjargar Jóhönnu, með hjartahnoði eftir að hún fór í hjartastopp í miðjum samræðum þeirra á milli á laugardagskvöldi. Þegar hjarta Sigurbjargar hætti að slá seig höfuð hennar niður og hélt Gísli fyrst að hún væri að grínast en áttaði sig fljótt að ekki var allt með felldu og að hjarta hennar hafði stöðvast. Gísli kallaði á eiginkonu sína að hringja í sjúkrabíl, tók dóttur sína niður á gólf og hóf strax endurlífgun. Bróðir Sigurbjargar aðstoðaði einnig við endurlífgunina og opnaði öndunarveg hennar samkvæmt leiðbeiningum frá neyðarverði Neyðarlínunnar.

Sjúkraflutningamenn og lögreglumenn komu á staðinn 7-8 mínútum eftir hringt var í 112. Þeir gáfu Sigurbjörgu stuð sem kom hjarta hennar aftur af stað og var hún í kjölfarið flutt á sjúkrahús.

Gísli starfar í álverinu í Straumsvík og hefur farið þar reglulega á skyndihjálparnámskeið. Sú kunnátta hans reyndist vel á þessari örlagastundu.

Þetta er í ellefta sinn sem Rauði krossinn velur Skyndihjálparmann ársins. Viðurkenninguna hlýtur sá einstaklingur sem hefur á árinu veitt skyndihjálp á eftirtektarverðan hátt. Sérstök dómnefnd sker úr um hver hlýtur viðurkenninguna ár hvert en hana skipa fulltrúar frá Rauða krossi Íslands, Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, Neyðarlínunni, Landsspítala háskólasjúkrahúsi, lögreglunni, og Landssambandi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku