Birna Berg framlengir við Fram
Fyrst birt: 18.05.2012 14:08, Síðast uppfært: 18.05.2012 14:12

Birna Berg í leik með Fram í vetur áður en hún meiddist - Mynd: Eva Björk
Birna Berg Haraldsdóttir, leikmaður meistaraflokks kvenna í handknattleik hjá Fram, hefur framlengt samning sinn við félagið um tvö ár en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Birna Berg meiddist illa á hné í vetur og missti af stórum hluta tímabilsins. Hún er ein efnilegasta handknattleikskona landsins og átti orðið fast sæti í íslenska landsliðinu áður en hún meiddist.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














