Birna Berg frá allt til áramóta
Fyrst birt: 27.01.2012 21:31 GMT, Síðast uppfært: 27.01.2012 21:35 GMT

Birna Berg í leik með Fram fyrr í vetur
Birna Berg Haraldsdóttir, leikmaður úrvalsdeildarliðs Fram í handknattleik, verður að öllum líkindum frá vegna meiðsla allt til næstu áramóta.
Birna meiddist illa á hné í leik með Fram á dögunum en hún sleit krossband auk þess sem liðband og liðþófi sködduðust. Hún mun fara í aðgerð í febrúar vegna meiðslanna. Birna lék einnig í markinu hjá ÍBV í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu á síðasta tímabili en hún var á láni frá FH og stóð sig frábærlega. ÍBV hafnaði í þriðja sæti deildarinnar og er það besti árangur nýliða í deildinni frá upphafi.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







