Birgir í 5.-13. sæti í Danmörku
Fyrst birt: 18.08.2012 17:55, Síðast uppfært: 18.08.2012 17:55

Birgir Leifur var aðeins tveimur höggum frá efstu mönnum - Mynd: www.gsimyndir.net
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í 5.-13. sæti á golfmóti í Danmörku, Ecco Tour Championship, en mótið er liður í evrópsku áskorendamótaröðinni.
Birgir Leifur var í baráttu um sigurinn á mótinu þar til á 16. holu en þá lenti hann í vandræðum, lék holuna á sjö höggum undir pari, fékk þrefaldan skolla og lauk hringnum á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari.
Birgir Leifur lauk leik á samtals tíu höggum undir pari líkt og átta aðrir kylfingar, aðeins tveimur höggum frá efsta sætinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














