Bílbruni á Siglufjarðarvegi
Fyrst birt: 28.07.2012 22:49, Síðast uppfært: 29.07.2012 03:28
Flokkar: Innlent, Norðurland

Slökkviliðið á Sauðárkróki var kallað út um átta leitið í kvöld vegna bruna í bíl á Siglufjarðarvegi.
Lögregla og slökkvilið á Sauðárkróki var kallað út um klukkan 8 í kvöld en kviknað hafði í bíl á Siglufjarðarvegi. Bíllinn hafði drepið á sér í akstri og fór ekki í gang aftur.
Ökumaður og farþegi forðuðu sér út úr bílnum þegar vart var við reyk og innan skamms gaus upp eldur. Ökumaður reyndi að slökkva með slökkvitæki en ekki var við neitt ráðið og brann allt í bílnum sem brunnið gat. Fólkið sem var í bílnum var nokkuð skelkað en að öðru leyti amaði ekkert að þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði en bíllinn er gjörónýtur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












