Bilaður mælir sýndi platskjálfta
Fyrst birt: 31.10.2011 22:39, Síðast uppfært: 31.10.2011 22:39

Bilaður mælir á Siglufirði gerði að verkum að svo var að sjá sem miklir jarðskjálftar hefðu riðið yfir á norðanverðu landinu milli klukkan hálf tíu og tíu í kvöld. Samkvæmt mælingum hans riðu skjálftar upp á 4,5 til 6,2 yfir en raunin var önnur og ró yfir öllu á þessum slóðum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







