Bikarmeistararnir báðir á útivöll

KR-ingar urðu bikarmeistarar í fyrra og eiga titil að verja. Þeir sækja Grindvíkinga heim í undanúrslitum í ár.


  • Prenta
  • Senda frétt

Dregið var í undanúrslit í bikarkeppninni í knattspyrnu nú í hádeginu. Hjá konunum mætast Stjarnan og Þór/KA á heimavelli Stjörnunnar og KR tekur á móti Val. Leikirnir fara fram 27. júlí.

Hjá körlunum tekur Stjarnan á móti Þrótti Reykjavík og Grindavík fékk heimaleik gegn KR. Leikirnir verða 1. og 2. ágúst.

KR varð bikarmeistari karla í fyrra en Valur hampaði bikarmeistaratitli kvenna 2011.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku