Þáttur við þúsund gráður

Á Rás 2 á laugardaginn ætlum við að minnast söngvarans ástsæla, Péturs Kristjánssonar, sem hefði orðið sextugur á þeim degi.

Bergsson og Blöndal láta ekki sitt eftir liggja.  Við spilum tónlistina hans og spjöllum við góðan vin og samstarfsmann, Steinar Berg Ísleifsson.  Það er óhætt að lofa sögu, já eða tveimur!

Gleðigjafinn og leikhúsgagnrýnandinn Bryndís Schram sest hjá okkur og segir af upplifun sinni á "Fanny og Alexander" í Borgarleikhúsinu.  Frumsýning er á Þrettándanum.   Við hringjum til Indlands og heyrum af ævintýrum Benediktu Guðrúnu Svavarsdóttur og svo ætlum við að velta fyrir okkur muninum á skáldsögu og raunveruleika.  Við rýnum með Ingva Þór Kormákssyni í ævisögu Brynhildar Georgíu Björnsson "Ellefu líf" og berum saman við skáldsögu Hallgríms Helgasonar, "Konan við 1000 gráður."

Svo er það heilsan á nýju ári.  Steinar Bjarki Magnússon eðalkokkur og íþróttamaður er sjálfur byrjaður á meinlætalífinu en er það nokkuð sniðugt?  Hvað eigum við leggja áherslu á í mataræðinu á þessum myrku Þorradögum?

Við byrjum kl. 8 á laugardagsmorgnum.  Bergsson og Blöndal – þáttur við þúsund gráður!

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku