Nú tökum við fram jólaplöturnar!

Bergsson og Blöndal eru algjör jólabörn og með aðstoð hlustenda eru þau búin að gera lista yfir uppáhalds jólaplöturnar.
Það kannast allir við nauðsyn þess að hlusta á ákveðin lög eða ástsæla listamenn til að koma sér í jólagírinn. Bergsson og Blöndal spurðu um uppáhalds jólaplötur hlustenda og útkoman er stórskemmtilegur topp 10 listi þar sem atkvæði skipta hundruðum. Í þættinum verður tekið forskot á jólasæluna og lög af plötunum spiluð. Eiður Arnarson, bassasnillingur og útgefandi kemur og ræðir listann við Felix og Margréti.
Svo slá Bergsson og Blöndal á þráðinn til hennar Ameríku og heyra í Stefáni Karli Stefánssyni sem er algjörlega að slá í gegn í leikhúsum vítt og breitt um land tækifæranna. Hann verður ásamt Steinunni Ólínu og börnunum í Pittsburgh á laugardaginn og býr sig undir að leika 4 sýningar í 3500 manna leikhúsi! 14000 manns bara þann daginn! Það er ekkert smáræði. Við spyrjum Stefán líka hvort þau hjónin séu á heimleið og hvort það sé satt sem flogið hefur fyrir að Steinunn hyggi á forsetaframboð!
Þór Jónsson kemur í spjall og segir veiðisögur og söngdívan Kristjana Stefánsdóttir leyfir okkur að heyra nýja tónlist sem hún og Svavar Knútur hafa verið að gera. Hún er líka komin úr mikilli frægðarför til Spánar þar sem leiksýningin Jesús litli sló algjörlega í gegn.
Það verður gestagangur og jólagleði í Bergsson og Blöndal á laugardagsmorgun!
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
Bergsson & BlöndalTilkynna um bilaða upptöku







