Nægjusamir hlustendur

Það er óhætt að segja að hlustendur Bergsson og Blöndal séu nægjusamir þegar kemur að því að velja jólagjöf ársins. Langflestir nefndu bók sem jólagjöf ársins og í öðru sæti eru geisladiskar.

Spjaldtölvan hafði verið kynnt sem jólagjöf ársins en hún varð í áttunda sæti í vali hlustenda Bergsson og Blöndal.  Meðal annarra gjafa sem voru nefndar voru miðar á tónleika, matur (t.d. ostur), náttföt og myndir á DVD.  Þá vildu fjölmargir ást, hlýju, samveru með fjölskyldu og frið á jörð.  Það verður erfitt að pakka því inn!

Bergsson og Blöndal þakka hlustendum þátttökuna og minna á að jólin eru fyrst og fremst hátíð ljóssins og kærleikans.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku