Laugardagur í London og Akureyri

Bergsson og Blöndal eru heimshornaflakkarar og hafa sent út frá ýmsum stöðum. Nú er röðin enn komin að London.

Margrét verður á Akureyri en Felix verður í höfuðstöðvum BBC og fær til sín góða gesti til að ræða leiklistarframa og Ólympíuleikana sem nú standa fyrir dyrum.

Körfuboltakappinn Axel Nikulásson er nú starfsmaður í sendiráði Íslands í London.  Hann er tengiliður Íslands varðandi Ólympíuleikana en þeir hefjast í London í lok júlí.  Axel var einnig í sendiráði Íslands í Peking þegar leikarnir voru haldnir þar árið 2008 og hefur því einstaka reynslu í að kynnast Ólympíuleikum á bak við tjöldin.  Axel býr í nágrenni við BBC og röltir yfir í kaffi.

Mæðgurnar Þórey Sigþórsdóttir og Hera Hilmarsdóttir eru báðar leikkonur.  Þórey hefur snúið aftur til London til að klára MA gráðu í leiklist við hinn virta Central School of Speech and Drama.  Hera er aftur á móti nýútskrifuð úr London Academy of Music and Drama (LAMDA) og er strax farin að gera það verulega gott.  Nýlega fékk hún hlutverk í sjónvarpsmynd um Önnu Kareninu sem skartar þeim Jude Law og Keiru Knightley í stærstu hlutverkunum.  Mæðgurnar koma í heimsókn.

Við hringjum til Stykkishólms og heyrum af kraftmiklu kórstarfi og söfnun fyrir nýju orgeli í kirkjuna og topp 10 listinn er samsettur af þeim löndum sem hlustendur þáttarins vilja helst heimsækja.  Draumalandið verður afhjúpað!

Á Akureyri verður Margrét ekki ein og yfirgefin því sjálfir Fjallabræður ætla að koma í heimsókn í litla hljóðverið fyrir norðan.  Og eins og það sé ekki nóg þá ætla þeir að taka með sér Sverri Bergmann og Jónas Sig.  Það verður testosterónsprengja í lok þáttar!

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku