Komdu í jólafíling!

Bergsson og Blöndal slá ekki slöku við og gera það að sérstöku markmiði sínu að koma landsmönnum í glimrandi jólaskap.

Á laugardaginn verður umræðuefnið jólasmákökur og topp 10 listinn er einmitt um þær.  Það er óhætt að segja að fátt veki jafnmikil hughrif og stemmningu og blessaðar smákökurnar.  Eru það hálfmánarnir eða loftkökurnar (sem sumir kalla Þingeyinga og Þingeyingar kalla Mývetninga)?  Eða kannski sörurnar, brúnu augun eða piparkökurnar?  Við viljum heyra um þínar uppáhaldskökur.  Skrifaðu okkur á bergssonogblondal@ruv.is eða finndu okkur á fésbókinni (http://www.facebook.com/pages/Bergsson-og-Bl%C3%B6ndal-laugardagsmorgnar-%C3%A1-R%C3%A1s-2/485501945594)

En við tökum líka á móti gestum og fyllum þá af Nóa konfekti.  Aðalgestir þáttarins eru sjarmatröllin Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson sem koma með Fleiri notalegar ábreiður með sér og gæla við tóneyra hlustenda.  Svo ætlum við að hringja í hana Margréti Sigfúsdóttur og heyra af opnu húsi í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík.

Bergsson og Blöndal - í notalegu og húslegu jólaskapi!

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku