Óléttur og óvæntar uppákomur!

Það gekk mikið á í Bergsson og Blöndal laugardaginn 18. febrúar 2012.

Við veltum fyrir okkur óléttuæði og gerðum um þau topp 10 lista!  Konur upplifa undarlegar langanir þegar þær eru óléttar.  Sumar vilja bara frostpinna, aðrar anda að sér útblæstri úr strætó og enn aðrar sleikja ösku úr öskubökkum!  Við fengum sérfræðing úr stétt ljósmæðra í heimsókn og skoðuðum skemmtileg bréf frá hlustendum.  Á toppnum reyndust vera langanir í frostpinna eða ís og þrá eftir súrum ávöxtum varð í öðru sæti.

Svo röbbuðum við við félagana í gleðisveitinni Svanfríði en þeir eru að koma aftur saman.  Gunnar Hermannsson, Birgir Hrafnsson og Sigurður Karlsson komu og rifjuðu upp eftirminnilega tíma í byrjun áttunda áratugarins. 

Háskóladagurinn var haldinn hátíðlegur þennan dag og við fengum góðan gest í heimsókn.  Það er Bryndís Björk Ásgeirsdóttir sálfræðingur og lektor við HR sem kemur á Sálfræðibílnum.  Ja, hvað er nú það?  Við settum Bryndísi á sálfræðibekkinn.

Í lokin fengum við svo aðra Bryndísi til okkar en það er engin önnur en Bryndís Schram sem kom og sagði okkur af upplifun sinni af Eldhafi og danssýningu Íslenska dansflokksins, Mínus 16, í Borgarleikhúsinu.  Það er alltaf gaman að fá Bryndísi í kaffi og það er óhætt að segja að hún hafi gefið þessum sýningum toppeinkunn!

Við hringdum óvænt á Blönduós og heyrðum í afmælisbarninu Jóni Sigurðssyni sem varð sextugur á laugardaginn.  Börnin hans, Einar Örn, Hjalti og Ásta Berglind hafa unnið plötu með bestu lögum Jóns og komu honum á óvart á afmælisdaginn með aðstoð Bergsson og Blöndal.  Útkoman er dásamlegt viðtal við afmælisbarnið, soninn Einar Örn og lag af plötunni.

Tónlistin var svo að hætti hússins, gamlir gullmolar í bland við nýja og skemmtilega tónlist.

Lagalisti

8.00 – 9.00

Jóhann Helgason – Hagavagninn

Phil Collins - (Love is like a) Heatwave

Hjálmar – Borð fyrir tvo

Bob Dylan – Just like a woman

Retro Stefson – Qween

Bubbi Morthens – Þínir löngu grönnu fingur

Blár ópal – Stattu upp

 

9.00 – 10.00

Svanfríður – Kalli kvennagull

Tony Bennett og Lady Gaga – The lady is a tramp

Lights on the highway – A little bit of everything

Bítlarnir – All my loving

-Viðtal við Einar Örn Jónsson –

Ásta Berglind Jónsdóttir – Það var ást þín

Michael Kiwanuka – Home Again

 

10.00 – 11.00

Sálin – Þig bara þig

Ríó Trío – Hver gerði Gerði?

George Baker Selection – Little Green Bag

Miss 600 – Typically me

Blágresi – Stjörnur hlæja

 

11.00 – 12.20

Svanfríður – Jibbý jey

Cee Lo – Anyway

Svanfríður – What‘s hidden there?

Gotye – Somebody that I used to know

Magni – Hugarró

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku