Óléttar taka æði!

Bergsson og Blöndal gera nýjan topp 10 lista sem verður afhjúpaður í þættinum 18. febrúar. Nú er spurt um "óléttuæði"
Það er þekkt staðreynd að konur fá sérkennilegar þarfir eða "æði" fyrir einhverju meðan á óléttu stendur. Við höfum frétt af konum sem hakka í sig græna frostpinna og af öðrum sem hreinlega sleikja sígarettuösku upp úr öskubökkum. Sumar elta strætó til að anda að sér bensíngufum og aðrar borða brennistein af eldspýtum, ja eða bara hreina mold! Lumar þú á einhverri skemmtilegri sögu? Skrifaðu Felix og Margréti á bergssonogblondal@ruv.is eða finndu síðu þáttarins á facebook og taktu þátt í skemmtilegri umræðu.
Bergsson og Blöndal - algjört æði!
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







