Ó hve ég sakna!

Gospillur, kisutyggjó, Saxbauti frá Kea, sjónvarpslausir fimmtudagar, Póló, Vallash, Spur og Óskalög sjúklinga – eru meðal þess sem hlustendur Bergsson og Blöndal sakna, svo ekki sé nú minnst á útileiki, bláan Ópal og gamla Prins Pólóið.

Topp tíu listinn næsta laugardag snýst um skemmtileg fyrirbæri úr fortíðinni sem eiga án efa eftir að vekja upp ljúfar minningar.  Bergsson og Blöndal óska eftir hjálp hlustenda við gera listann og auglýsa eftir því sem þið saknið úr fortíðinni.  Skrifið stjórnendum í netfangið bergssonogblondal@ruv.is eða finnið facebook síðu þáttarins og takið þátt í þessu skemmtilega vali.

Söngvakeppni sjónvarpsins kemur líka við sögu enda lokakvöldið í Hörpu framundan og spennan í hámarki. Það verður vel þess virði að vakna snemma á laugardagsmorgunin, kveikja á Rás 2 og hlusta á Bergsson og Blöndal sem verða syngjandi sæl í flautubuxum og fótlagaskóm.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku