Góðan daginn!!

Bergsson og Blöndal mæta á vaktina á Rás 2 og njóta þess að eiga stund með hlustendum. Fortíðin verður fyrirferðarmikil þennan laugardaginn.
Topp 10 listinn er "Það sem þú saknar úr fortíðinni" og þar kennir margra grasa, bæði matarkyns og ekki. Við ræðum málið og kynnum svo nýjan topp 10 lista.
Söngvakeppni Sjónvarpsins verður haldin í Hörpu í kvöld og það stendur mikið til. Í anda fortíðar munu Bergsson og Blöndal grafa upp skemmtileg lög úr undankeppni síðustu ára, já og áratuga! Einnig verða öll keppnislög kvöldsins leikin. Við kíkjum svo í Hörpu, hittum útsendingastjórann og manninn á bak við tjöldin, Helga Jóhannesson, sem verður á fullu í útsendingarbíl við tónlistarhúsið að stjórna lokaæfingunni. Svo fáum við góða gesti sem þekkja vel til söngvakeppninnar, annarsvegar fyrsta kynninn Jónas R Jónasson og hinsvegar stjörnu úr Vinum Sjonna, Pálma Sigurhjartarson. Við fáum sögur og plötum þá til að spá í spilin.
Við fögnum minningartónleikum sem verða um Bergþóru Árnadóttur í næstu viku og fáum góða gesti í hljóðver á Akureyri. Þeirra á meðal er snillingurinn Pálmi Gunnarsson sem þekkti Bergþóru vel. Hann segir okkur af henni og svo taka þau lagið ásamt Pálma, Guðmundur Árnason og dóttir hans Móheiður Guðmundsdóttir.
Við hringjum í kraftaverkafólk á suðurlandi. Söngvaskáldin Uni og Jón Tryggvi opna heimili sitt fyrir tónlistarmönnum og á næstunni er von á miklum hetjum. Þau búa á Merkigili og við hringjum í Uni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
Bergsson & BlöndalTilkynna um bilaða upptöku







