Ástralía og olíuleit

Bergsson og Blöndal hefja sinn vikulega þátt kl. 8.05 á laugardagsmorgni á Rás 2.
Í dag munu þau Felix og Margrét m.a. heyra í ungum stúlkum sem eru að keppa í olíuleit í London. Já, þú last rétt, olíuleit! Raunar er þetta tölvuleikur sem nemendur í framhaldsskólum frá Noregi, Skotlandi, Danmörku og Íslandi keppa í. Fulltrúar Íslands þetta árið eru þær Dóra Björg Björnsdóttir og Siggerður Aðalsteinsdóttir en þær koma frá Fjölbrautarskóla Austur Skaftafellssýslu. Við sláum á þráðinn og truflum þær í keppninni.
Hundur í óskilum kemur í heimsókn og tekur lagið en þessi landsfrægi dúett ætlar að trylla höfuðborgarbúa með sýningunni sinni, Saga þjóðar, en þar er farið yfir Íslandssöguna á hundavaði í tali og tónum. Sýningin var frumsýnd á Akureyri en kemur nú í Borgarleikhúsið.
Svo er það topp 10 listinn. Við spurðum hlustendur hvaða íþróttagrein þeir vildu helst sjá á ólympíuleikum. Úrslitin verða kynnt í þættinum. Og talandi um íþróttir. Íþróttasamband Íslands fagnar 100 ára afmæli á árinu og blæs til mikillar veislu. Hjördís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri afmælisársins og Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ koma í spjall.
Svo ætlum við að hringja til Ástralíu, enda er það draumaland hlustenda Bergsson og Blöndal. Freyr Björnsson verður á línunni.
Söngvakeppnin kemur við sögu og við heyrum í hlustendum. Tónlistin verður að sjálfsögðu að hætti hússins!
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







