Bensínverð hækkar
Fyrst birt: 08.02.2012 00:32, Síðast uppfært: 08.02.2012 03:08

Safnmynd.
Skeljungur hefur hækkað bensínverð sitt í 250,90 krónur á hvern lítra og lítrinn af dísil kostar nú 256,80 krónur.
Verðið hefur ekki enn hækkað á bensínstöðvum annarra olíufélaga. Þar er algengt bensínverð á bilinu 245 til 246 krónur. Dísillítrinn kostar hins vegar víðast um 253 krónur samkvæmt yfirliti á vefnum GSM bensín.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







