Benedikt í Aftureldingu
Fyrst birt: 17.05.2012 20:54, Síðast uppfært: 17.05.2012 20:55

Benedikt Reynir Kristinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við úrvalsdeildarlið Aftureldingar í handknattleik.
Benedikt er 22 ára hornamaður og kemur til Mosfellinga frá Gróttu en hann er uppalinn í FH og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2011. Hann á einnig að baki fjölmarga leiki með unglingalandsliðum Íslands.
Auk Benedikts hefur Afturelding fengið Örn Inga Bjarkason frá FH og framlengt samninga við þá leikmenn sem voru fyrir hjá félaginu. Þá mun Reynir Þór Reynisson þjálfa liðið áfram á næstu leiktíð.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














