Becromal í óvissu

Erfiðleikar á mörkuðum erlendis valda því að aflþynnuverksmiðja Becromal á Akureyri er aðeins rekin með ríflega helmings afköstum. Óvissa ríkir á meðal starfsfólksins sem auk þess á í erfiðum kjaraviðræðum við fyrirtækið.

Skömmu fyrir áramót hóf Becromal að draga úr framleiðslu í verksmiðju sinni í Krossanesi við Akureyri. Þar eru framleiddar aflþynnur, oxíhúðaðar álþynnur sem notaðar eru í margskonar rafeindabúnaði.

Þetta er dýr vara og erfitt efnahagsástand í heiminum veldur minnkandi eftirspurn. Framleiðslustjóri í verksmiðjunni segir hana í dag rekna með um 60% afkastagetu. Þá var sex starfsmönnum þar sagt upp um síðustu mánaðamót.

Um 100 manns starfa hjá Becromal á Akureyri og þar hafa verið uppi áform um stækkun en varla verður af því í bráð.

Auk samdráttar í framleiðslu hjá Becromal, eiga starfsmenn í verksmiðjunni í launadeilu við fyrirtækið. Þar er starfað samkvæmt bráðabirgðasamningi frá því síðastliðið vor og lítið hefur mjakast í samningaviðræðum.

Samningurinn fól í sér launahækkun í formi eingreiðslu en hann fellur úr gildi 15. apríl.

Eining-Iðja fer með samninga fyrir hönd starfsmanna og hafa viðræður gengið erfiðlega að sögn formanns félagsins og mikið ber í milli. Auk launa er deilt um vaktakerfi en þar vill Becromal gera breytingar sem starfsmennirnir eru ósáttir við.

Í samtölum við starfsmenn í verksmiðjunni ríkir mikil óvissa hjá þeim bæði hvað varðar framleiðslu og kjaramál. Þeir segjast litlar upplýsingar fá frá fyrirtækinu um stöðu mála.

Verksmiðjustjóri Becromal gat ekki gefið sér tíma fyrir viðtal í dag og svaraði ekki spurningum sem beint var til hans í tölvupósti.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Norðurland

Tilkynna um bilaða upptöku