Synt með höfrungum

Höfrungar geta ekki haldið sér í kafi of lengi, því þeir þurfa að koma upp á yfirborðið til að anda.

Höfrungar eru skynugar og fallegar skepnur sem geta synt hratt, stokkið hátt og eru alltaf tilbúnar í leik. Við syndum með höfrungum og kynnumst þeim betur á Leynifélagsfundi.

Dagskrá Leynifélagsfundar 27.janúar 2012. 

Til eru um 41 ein tegund af höfrungum um allan heim og meira að segja við Íslandsstrendur. Vinsælasta og þekktasta tegundin er Trjónuskopparar en þeir sjást oft leika í sjónum þar sem þeir elta báta uppi og koma stökkvandi upp úr vatninu og sýna listir sínar. Þeir ferðast saman í stórum hópum og tala saman með líkamstjáningu og sérstökum hljóðum sem þeir gefa frá sér, sum svo há að menn geta ekki heyrt þau. 

Á Leynifélagsfundinum mun bókahillan endalausa, og töfraspegillinn hjálpa okkur að kynnast höfrungnum aðeins betur. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku