Skrímsli á safnanótt

Börn geta komið við í Ráðhúsi Reykjavíkur á Vetarhátíð og byggt úr Lego kubbum.

Sérstakur safnanæturstrætó mun flytja börn og fullorðna milli safna á safnanótt næsta föstudag þar sem má sjá drauga, skrímsli og sjóræninga.

Vetrarhátíð hefst í Reykjavík á morgun fimmtudaginn 9.febrúar. Það verður heilmargt að gera fyrir alla leynifélaga, til dæmis verður hægt að heimsækja söfnin í Reykjavík, í Hafnarfirði og Mosfellsbæ og fara á milli þeirra í sérstökum næturstrætó sem gengur frá Kjarvalsstöðum. Krakkar láta ekki sitt eftir liggja á Vetrarhátíðinni og munu meðal annars byggja ýmislegt spennandi úr Lego-kubbum í Ráðhúsi Reykjavíkur, flytja frumsamin rafverk og dansa vélaballet. Við kynnum okkur dagskrána á Leynifélagsfundinum í kvöld. 

Framhaldssagan er á sínum stað, Flateyjarbréfin eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur, sem Kristín Eva Þórhallsdóttir les. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku