Síðasti geirfuglinn
Fyrst birt: 05.06.2012 11:02, Síðast uppfært: 11.06.2012 11:51
Flokkar: Barnaefni, Leynifélagið

Leynifélaginn Askur Hrafn fær að skoða síðasta geirfuglinn hjá Náttúrufræðistofnun Íslands ásamt nokkrum tunglsteinum.
Geirfulginn er útdauð fuglategund sem bjó á Íslandi. Geirfuglinn líktist mörgæs í útliti og var um 70 sentimetrar á hæð og var algengur fram á 16.öld en þá var hann veiddur grimmt og voru síðustu fuglarnir drepnir í Eldey í júní árið 1844. Náttúrufræðistofnun Íslands á eitt eintak af uppstoppuðum geirfugli sem leynifélaginn Askur Hrafn fer að skoða og fræðir leynifélaga um fuglinn og ýmislegt fleira í leiðinni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












