Páfagaukur leikur á sviði

Langi Jón Silfur og aðrir sjóræningjar í Gulleyjunni.

Lifandi páfagaukur situr á öxl Langa Jóns Silfur í ævintýrinu Gulleyjan sem Leikfélag Akureyrar setur upp. Hann segir já við öllu og er hlýðinn og góður og fer eftir því sem leikstjórinn segir.

Dagskrá Leynifélagsfundar 25.janúar 2012

Á sveitakrá einni situr Þóra Karitas Árnadóttir leikkona og undirbýr sig undir mikið sjóræningaævintýri. Hún leikur eitt af aðalhlutverkunum í leikritinu Gulleyjan sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir á morgun. Hún segir Kristínu Evu frá því hvernig hún lærði að leika, syngja, dansa og sveifla sverði samtímis auk þess sem hún segir nokkrar sögur af páfagauk einum sem er meðal leikenda. Leynifélagar fá líka að heyra sjóræningalög úr sýningunni sem eru eftir Þorvald Bjarna. 

Framhaldssagan Flateyjarbréfin eftir Kristjönu friðbjörnsdóttur er svo auðvitað á sínum stað en það er Kristín Eva Þórhallsdóttir sem sest í sögustólinn og les 6.lestur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku