Ljón sem segir mjá
Fyrst birt: 06.02.2012 09:28, Síðast uppfært: 06.02.2012 13:50

Í Sjálandsskóla setja börn í 1.-2.bekk upp leikritið Kardemommubærinn eftir Thorbjörn Egner með tilheyrandi fussumsvei, húfuleit og litlu ljóni sem segir mjá. Þrátt fyrir ungan aldur er leikararnir með allt á hreinu og eiga ekki í nokkrum vandræðum með að muna langan leiktexta.
Dagskrá Leynifélagsfundar 6.febrúar 2012
Týnd húfa, ljón og hneyksluð frænka eru á dagskrá fundarins. Krakkar í 1.-2.bekk Sjálandsskóla eru að setja upp Kardemommubæinn og Kristín Eva lítur við á æfingu og spjallar við ræningjana þrjá og ljónið sem segir mjá. Framhaldssagan verður á sínum stað sínum stað, Flateyjarbréfin eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







