Lengsta barnakeðja á Íslandi

Á morgun, laugardag 6.janúar klukkan fjögur, verður sett Íslandsmet við Reykjavíkurtjörn. Þá standa Barnaheill- Save the Children á Íslandi fyrir því að mynda keðju barna í kringum tjörnina.

Örugglega lengstu barnakeðja á Íslandi verður mynduð í kringum Reykjavíkurtjörn á morgun laugardag 6.janúar klukkan fjögur. Allir krakkarnir verða með neonljós og þegar hringnum hefur verið lokað gera allir bylgju. Það er Barnaheill - Save the Children á Íslandi sem stendur fyrir því að mynda keðju barna í kringum tjörnina. 

Það þarf svona þúsund krakka til að ná kringum tjörnina og allir krakkar sem vilja og geta komið og tekið þátt í því að búa til keðjuna eru velkomnir. Munið að spyrja samt alltaf pabba og mömmu hvort þið megið fara, en ennþá betra er að taka þau bara með!

Tilefnið er að á laugardaginn ýta Barnaeill úr vör Heillakeðju barnanna 2012 sem verður í gangi allt árið og er ætlað að vekja athygli á málefnum og réttindum barna auk þess sem íslensk fyrirtæki taka einn mánuð í fóstur þar sem þau leggja áherslu á réttindi barna og safna fé, með hjálp viðskiptavina sinna, til styrktar starfsemi Barnaheilla - Save the Children á Íslandi, mannréttindasamtaka barna.
Næsta þriðjudag verður svo fjallað nánar um þetta allt á Leynifélagsfundi.

Alltaf leyndó-alltaf gaman :)

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku