Krakkar í Crossfit

Íslenskir krakkar eru duglegir að stunda íþróttir og hreyfingu utan skóla og eru tilbúnir að prófa nýja hluti, til dæmis Crossfit.
Leynifélagið er alltaf jafn forvitið um allt það sem leynifélagar eru að gera alla daga og þegar við heyrðum að því að nokkrir krakkar væru að æfa Crossfit þá fórum við og könnuðum málið. Í Crossfit er mikið gert af hnébeygjum, armbeygjum og magaæfingum í ákveðinn tíma og svo er líka verið að lyfta lóðum. Krakkar hinsvegar eru ekki látnir lyfta þungum lóðum, frekar ketilbjöllum og boltum. Hver æfing er stutt en krakkarnir reyna eins mikið á sig og þeir geta á hverri æfingu. Leynifélagið spjallaði við þrjá krakka sem eru að æfa Crossfit.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







