Íslensk börn fengu jól í skókassa

Á stríðsárunum fengu íslensk börn gjafir frá Bandaríkjunum, svipaðar þeim sem Íslendingar senda nú til útlanda undir heitinu Jól í skókassa.
Dagskrá Leynifélagsfundar 20.desember kl.20.00
Sennilega hafa margir Leynifélagar sett jólagjafir í skókassa og sent til barna í nauð í útlöndum. Það kallast jól í skókassa. En vissuð þið að fyrir mörgum árum fengu íslensk börn senda svona gjafir frá útlöndum? Það var ekki vegna þess að þau væru svona fátæk börnin hérna á Íslandi, heldur vegna þess að bandaríski herinn var hér á landi og Bandaríkjamenn héldu að íslensku börnin ættu ekki neitt. Óskar og Lóa, sem eru nú orðinn afi og amma, fengu svona gjafir þegar þau voru lítil og segja leynifélögum frá þvi. Lóa minnist þess einnig þegar hún fékk skauta og fallega prjónapeysu í jólagjöf.
Tunglsgeislinn leikur um Leynilund og færir okkur söguna Lafði Lúna, ævintýri á jólanótt eftir Tryggva Gunnarsson sem hann sjálfur les.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







