Hrakfarir á föstudaginn þrettánda

Föstudagurinn þrettándi er þrisvar til fjórum sinnum á ári og telja sumir að það sé óhappadagur mikill. Allt tengist það hjátrú í tengslum við töluna þrettán.
Sumir halda að talan þrettán sé óhappatala og að föstudagurinn þrettándi sé óhappadagur. Í sumum borgum er þrettándu götu sleppt og til eru hótel þar sem þrettándu hæð er sleppt, þá kemur sú fjórtánda strax á eftir þeirri tólftu. Menn vita ekki nákvæmlega af hverju þessi hjátrú varð til en til eru ýmsar kenningar. Allt bendir þó til þess að föstudagurinn þrettándi sé ekkert frábrugðin öðrum dögum og það sé aðeins hjátrú sem stýrir ótta fólks við föstudaginn þrettánda.
Fjallað verður frekar um daginn á Leynifélagsfundi föstudaginn þrettánda.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







