Græn jól í ár

Umhverfisfræðingur heimsækir Leynilund og kennir Brynhildi og Kristínu Evu að halda græn jól. Til dæmis með því að flokka ruslið eftir jólagjafirnar.
Plastumbúðir utan af leikföngum sem krakkar fá í jólagjöf geta öðlast nýtt líf í endurvinnslu og svo ekki sé þörf á að framleiða nýtt plast sem unnið er úr olíu. Þess vegna ætla Kristín Eva, Brynhildur og Gilbert dreki að taka höndum og klóm saman þessi jól og velja umhverfisvænan jólapappír og endurvinna plast, pappír og annað rusl sem tilfellur á jólunum. Jólagjöfin hans Gilberts dreka er til dæmis gott knús, en það skilur ekki eftir sig neitt rusl og það þarf ekkert hráefni úr náttúrunni til að búa það til, nema ást og umhyggju.
Leynifélagið óskar öllum leynifélögum gleðilegra jóla.
Leynifélagsfundurinn um græn jól er haldinn 21.desember kl.20.00
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







