Allir geta stundað parkúr

Parkúríþróttin er ný af nálinni á Íslandi en hún hefur náð miklum vinsældum á stuttum tíma. Stór hópur drengja æfir parkúr hjá Gerplu í Kópavogi þar sem drengirnir segjast fá mikla útrás og skemmta sér kongunglega í hverjum einasta tíma þar sem þeir fá að leika frjálsir og hoppa og skoppa.
Parkúríþróttin virðist erfið og flókin en mjög skemmtileg. Þeir sem stunda parkúr geta stokkið í heljastökk aftur á bak og áfram og farið í allskyns apastökk. Hjá Gerplu í Kópavogi æfir strákahópur parkúr þrisvar í viku. Þjálfarinn þeirra, Sindri, var sá fyrsti á Íslandi að læra og stunda parkúr og hann segir leynifélögum frá íþróttinni, reglunum og af hverju allir geta stundað parkúr.
Dagskrá Leynifélagsfundar 30.janúar 2012.
Framhaldssagan Flateyjarbréfin eftir Kristjönu Friðbjörnsdóttur er á sínum stað og er það Kristín Eva Þórhallsdóttir sem les 7.lestur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







