Barcelona hóf tímabilið á stórsigri

Messi skoraði tvö marka Barcelona í dag


  • Prenta
  • Senda frétt

Barcelona vann öruggan sigur á Real Sociedad 5-1 á Nývangi í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lionel Messi skoraði tvívegis fyrir Barcelona í leiknum og þeir Carles Puyol, Pedro Rodriguez og David Villa sitt markið hver en Gonzalo Castro gerði mark Real Sociedad.

Þá gerðu Spánarmeistarar Real Madrid 1-1 jafntefli við Valencia á heimavelli. Gonzalo Hiugain skoraði fyrir Real Madríd en Goncalves Oliveira Jonas var með mark Valencia.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku